laugardagur, september 18, 2004

Jæja þá er ég búin að skoða meira hvaða leiðir við þurfum að fara ef við ætlum að ferðast svona mikið með rútum og svona hljóðar þetta:
í chile lendum við í Santiago, þar þurfum við amk að skoða Valpareiso og Vina del Mar, síðan förum til til La Serena og þaðan til San Juan í Argentínu á leið okkar til Buenos aires getum við skoðað Cordoba, Santa Fe og Rosario, þegar við höldum svo frá Buenos aires til brasilíu ætlum við að skoða igazu falls, þaðan liggur leið okkar til Sao Paolo og þaðan til Rio De Janeiro í Brasilíu getum við svo skoðað ýmislegt...jæja þaðan fljúgum við til Lima og þaðan svo til Costa Rica, þegar þangað er komði hefst löng leið til Belize og síðar til Cancun Mexico: frá San José er sennileag best að fara til penas blancas og þaðan yfir til Gaussaule, El espino eða Las manos (sennilega best að fara þangað en best að athuga hvert er þægilegast að fara)....þaðan þurfum við síðan að koma okkur til Puerto Cortes þar sem við getum tekið bát til Belize city.....þaðan þurfum við síðan að koma bossunum okkar til Mexico....það vill svo heppilega til að það eru böss ferðir til mexico frá belize...þar munum við fara til Chetumal í Mexico....þá er ekki langt að fara til Cancun - þaðan ætlum við að fljúga til kúbu en koma aftur til mexico, eftir það liggur leiðin til La þar sem við ætlum að keyra til LV og þaðan förum við til Hawaii....next stop nýja sjáland og ástralía, sem liggja nokkuð beint við....eftir það kemur Víetnam og Kambódía og það er smá spurning hvernig sé best að raða þessu...ég var jafnvel að pæla hvort það sé ekki best að byrja í kambódíu í phnom phen fara síðan til Moc bai í víetnam, yfir til Ho chi min, fara síðan til Hanoi og þaðan til Hong Kong og fljúga síðan þaðan til Delhi.....eða fljúga frá hanoi....já þetta er spurning síðan er bara spurning hvaða tíma öll þessi ferðalög taka (örugglega endalausan tíma...well ) við þurfum bráðlega að taka ákvörðun um þetta því við erum að fara að kaupa farseðlana.....
Viktoría posted at 11:00 e.h.

.x.x.x.x.x.

föstudagur, september 17, 2004

Fann snilldarsíðu á netinu þegar ég var að leita af bössum í S-Ameríku....www.bussation.net þar sem mar getur fundið bössa út um allt...síðan sýnist mér bara ekkert mál að ferðast á milli Ho Chi Minh og Phnom Penh samkvæmt þessu....Kúlness
Viktoría posted at 4:34 e.h.

.x.x.x.x.x.

Jæja þá er allt að gerast...við erum búnar að fá tilboð frá vicky sem okkur líst mjög vel á....og ætlum við að panta það ef Sophie kemur ekki með því betra tilboð:Þ en tilboðið hljómar svona
við fljúgum frá London til Santiago, Chile síðan ætlum við að ferðast sjálfar til Bunos Aires og þaðan sjálfar til Rio De Janeiro, þaðan ætlum við að fljúga til Lima í Perú og aftur þaðan til Costa Rica, eftir það hefst för okkar til Mexico og ætlum við að stoppa á öllum helstu stöðunum þar á milli m.a. Belize, frá mexico ætlum við að fljúga til kúbu (eigum reyndar eftir að kaupa þann farseðil) og eftir það fljúgum við frá mexico til LA og þaðan fljúgum við til Hawaii og síðan til Auckland í nýja sjálandi, við ætlum að ferðast þar sjálfar og fljúga síðan frá Wellington til Sydney, aftur ætlum við að ferðast sjálfar til Melbourne og fljúga þaðan til Singapore, eftir það verður flogið til Ho Chi Minh og síðan ætlum við að ferðast sjálfar til Phnom Phen sem er í Kambódíu....eftir þetta verður farið til Delhi og síðan frankfurt og síðan heim....þannig þetta hljómar sem heljarinnar ferð en við verðum líka mikið á ferðinni:Þ Allt þetta kostar 284000 kr....
Já og síðan er ég búin að tala við travel agent í brasilíu sem ætlar að selja okkur miða á carnivalið og við erum búin að staðfesta hóteli í rio.....yes sörrí....I am so excited...I just can't hide it....
kv.
Viks
Viktoría posted at 1:18 e.h.

.x.x.x.x.x.

mánudagur, september 13, 2004

jæja góðir hálsar þá er Vicky búin að svara og ætlar hún að fara að kokka upp plan fyrir okkur...það eru enn smá breytingar því við erum að pæla hvort við eigum að leggja á okkur að fara til San Fransisco...það tekur 10 tíma hvora leið og er það svoldil keyrsla á 2 dögum...við sjáum til:D við erum líka eiginlega búnar að ákveða að taka bara lest til rio frá bunos aires og einnig frá santiago til bunos...þannig nú er um að gera að reyna að finna leið til þess að fjárfesta í miða til rio...því það verður örugglega að panta með fyrirvara út af kjötkveðjuhátíðinni....já og sigrún er búin að panta hostæl fyrir okkur í Rio.....
well more l8ter
kv.
viks
Viktoría posted at 2:49 f.h.

.x.x.x.x.x.

mánudagur, september 06, 2004

jæja...Lauren og Vichy ekki enn búnar að svara okkur:( beljur....En góðu fréttirnar eru er að ég var að fjárfesta í geggjuðum bakpokum handa mér og Sigrúnu og eru þeir væntanlegir til landsins bráðlega...þá getum við Sigrún farið að æfa okkur í að pakka.....Síðan var ég að tékka á vegabréfaáritunum við þurfum held ég að fá eitthvað svona tourist card til þess að komast inn í að ég held Mexico og kúbu amk...síðan þurfum við visa til ástralíu...held að það sé ekki meira.....
Viktoría posted at 4:20 f.h.

.x.x.x.x.x.


Adrir Ferdalangar
Bleiki, Danni og Stebbi, á flakki
Dagbjort
Karen og Katrín
Vinir og vandamenn
Hrafnhildur fraenka
Sigga Run fraenka
Asta Andresar
Viktoria
Verzlo gellur
Saumavelin
Gudny Mega Babe

Annad
Myndir
Gestabok Lonelyplanet

E-meil Viktoria
E-meil Sigrun

Ferdin
20.feb - peru
27.feb - panama, costa rica, nicaragua, honduras, beliz, mexico, cuba
1.april - Las Vegas, Los Angeles, Hawaii
16.april - Fidji
18.april - Nyja Sjaland
29.april - astralia
11.mai - vietnam, kambodia
31.mai - thyskaland

  • ágúst 2004
  • september 2004
  • október 2004
  • nóvember 2004
  • desember 2004
  • janúar 2005
  • febrúar 2005
  • mars 2005
  • apríl 2005
  • maí 2005
  • júní 2005